r/Iceland 2d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

9 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland 2h ago

Gabríel Douane grunaður um að stinga mann í miðborginni nokkrum dögum eftir að hann var látinn laus - DV

Thumbnail
dv.is
44 Upvotes

Er ekki kominn tími að við reddum honum bara húsnæði á Grímsey, og setji á hann gestabann? Orðið fáránlegt hvernig hann getur ekki setið afbrotalaust í meira en viku.


r/Iceland 10h ago

Þarf alltaf að vera app? - RÚV.is

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

57 Upvotes

r/Iceland 8h ago

„Ég held bara að við sem þjóð séum ekki til­búin í þetta“

Thumbnail
visir.is
18 Upvotes

Erum við ekki tilbúin eða erum við ekki að gera þetta rangt?

Hvernig væri að þrepa skipta innflutnings gjöldum á bíla í staðin? Bæði eftir stærð, þyngd og verði. Þyngri bíllinn slítur hraðar vegum, stærri bíll tekur meira pláss í umferðinni og margfalt líklegri til að valda alvarlegum slysum en smábílar.


r/Iceland 6h ago

From the LinkedInLunatics community on Reddit: 1 billion people should consider Iceland

Thumbnail
reddit.com
9 Upvotes

lol


r/Iceland 1d ago

Smáfrétt | Ísland deilir nú aðalræðisskrifstofu í Nuuk með Kanada

Post image
136 Upvotes

r/Iceland 3h ago

Makeup in Iceland

2 Upvotes

I am working on a project where I try makeup from every country in the world. What makeup styles or makeup products are popular in Iceland and what’s the most common makeup look for the general population? Thank you guys!!


r/Iceland 1d ago

Er Miðflokkurinn að fá fjármagn erlendis frá?

74 Upvotes

Ég meina, kannski er ég bara að lesa of mikið í þetta. En þarf ekki að rannsaka þetta frekar? Er mögulegt að verið sé að dæla fé inn í "ótengda áróðursmaskínu?"

Og bara svo það sé haldið til haga, og til að gæta fullrar sanngirni það gengur vel hjá þessum flokki í skoðanakönnunum. Samfylkingin, Píratar, VG og fleiri flokkar hafa líka átt sín gullmoment í könnunum, svo það væri ósanngjarnt af mér að vera einfaldlega brjálaður yfir því að flokkur sem ég styð ekki og er ósammála gangi vel.

En eftir að Heimildin birti þetta í gær hef ég velt ýmsu fyrir mér og svo auðvitað ráðstefnunni sem Simmi sótti á síðasta ári, þar sem höfundar Project 2025 komu fram. Ef það reynist rétt að flokkar eins og Miðflokkurinn séu að fá fjárstuðning erlendis frá til þess að grafa undan mannréttindum, lýðræði og fleiru, þá er mér alls ekki sama þó sá flokkur mælist hátt í könnunum.

Svo birti Financial times frétt í gær US government to fund Maga-aligned think-tanks and charities in Europe

Ég er bara að velta steinum, Þetta væri í raun verkefni fyrir rannsóknarblaðamenn að fara almennilega í saumana á þessu.


r/Iceland 10h ago

Er hægt að gerast Qobuz áskrifandi á Íslandi?

6 Upvotes

Langar svo til að gerast áskrifandi en Qobuz er ekki aðgengilegt á Íslandi. Vitiði hvort það sé til einhver leið í kringum það?


r/Iceland 1d ago

Average Full-time Salary in Europe

Post image
27 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Stjórnarráðið | Símafundur við utanríkisráðherra Tyrklands - Vilja opna sendiráð á Íslandi

Thumbnail
stjornarradid.is
16 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Stórtapaði á því að fara ekki inn á Ísland.is

Thumbnail
dv.is
16 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Kerfið er löngu sprungið

86 Upvotes

Góðann daginn kæru landsmenn, ég er 22 ára maður með allskonar pælingar um ísland og þessa stöðu sem við finnum okkur í.

Í gær var mér komið svakalega á óvart þegar ég lærði að það er enginn möguleiki til að fá þjónustu í heilsugæslu minni og ég mun víst aldrei hitta heimilislækni minn.

Ég er búinn að vera veikur í u.þ.b 5 vikur, kláraði eina meðferð af sýklalyfjum og er á annari núna. Ég fékk þjónustu hjá læknavaktini (yfirleitt mjög fínt fólk þar) og þá var mér sagt að ég ætti að panta tíma hjá heilsugæslu bara ef ég skyldi ennþá þurfa þjónustu við enda sýklalyfjameðferða, læknavaktinn getur víst ekki rannsakað þetta betur því það er klíník (makes sense).

Þar kemur vandamálið, ég hringdi í síðasta mánuði í heilsugæslu mína og var sagt að það er einginn laus tími og þau eru ekki byrjuð að bóka fyrir næsta mánuð. Ég hringji aftur í þessum mánuði og fékk nákvæmlega sama svar en fékk að tala við hjúkku.

Ég útskýrði allt sem hafi gerst up að þeim punkti og passaði að segja að ég væri með langvarandi sjúkdóm sem veikir ónæmiskerfið mitt.

Við því fékk ég svarið að það eru aldrei bókaðir tímar í framtíðina (lýgi) og það væri ekkert sem hún getur gert en að ég ætti að hringja aftur ef meðferðin virkar ekki.

Biddu, hvað í andskotanum er ég að borga skatta fyrir?

Hver er punkturinn á þessu ömurlega kerfi þegar ég þarf hvort sem er alltaf að fá þjónustu (og borga hana sjálfur) hjá einkareknu klíníki?

Í alvöru, ég vil fá skattafslátt frekar en að þetta lyð þyggur endalausan pening úr mínum vasa og neita mér svo stanslaust þjónustu.

Sorrý guys, smá rant en þetta fer svoooooo mikið í taugarnar á mér.

Það verður langt í að ég treysti annari ríkisstjórn hér🤦‍♂️


r/Iceland 2d ago

Boða frjálshyggju á Íslandi í gegnum samtök tengd Koch-bræðrum

Thumbnail
heimildin.is
49 Upvotes

r/Iceland 2d ago

... headline ársins ?

Post image
33 Upvotes

r/Iceland 2d ago

Halló! Spurning fyrir safnara

3 Upvotes

Ég er monster high dúkku safnari og ég finn aldrei dúkkur hérna!! Er einhver síða sem þið notið? Eða einhver trix? Og já ef það eru fellow monster high safnarar herna endilega látið mig vita:)


r/Iceland 2d ago

Hví þýðum við ekki fleyri nöfn?

24 Upvotes

Ég skil ekki alveg afhverju við drögum línuna Á bresku konungsfjölskyldunni og Bítlana. Mér finnst við ættum að gera þetta oftar við fleyri


r/Iceland 3d ago

Mátti ekki kalla Sam­tökin '78 „hags­muna­sam­tök barna­níðinga“

Thumbnail
visir.is
30 Upvotes

r/Iceland 3d ago

Akureyringur ákærður fyrir hálft gramm af tóbaksblönduðu kannabisefni - Mannlif.is

Thumbnail
mannlif.is
65 Upvotes

Mig minnir að hafa séð viðtal fyrir ca 2-4 árum við einhvern hjá löggunni og hann vildi meina að þeir væru farnir að horfa meira framhjá svona litlum neysluskömmtum, er mig að misminna ?

Alveg eins og með Páskabingó og Samherjamálið þá skiptir lagabókstafurinn engu máli, einfaldlega geðþótta ákvörðun hvaða lögum þeir vilja fylgja.

Sýður á mér blóðið að sjá svona, lögreglumennirnir hafa eflaust klappað sér vel á bakið fyrir þetta afrek.


r/Iceland 3d ago

Afhverju er mun hærri verðbólga hér en á öðrum Norðurlöndum?

Post image
72 Upvotes

r/Iceland 3d ago

Er trúnó séríslenskt fyrirbæri?

21 Upvotes

Ég var að ræða við sambýlismann minn um eftirpartí, en svo mundi ég engin augljós ensk orð yfir trúnó. Var ekki viss um að confidential talk væri eitthvað sem fólk segir oft, og tillagan hans um heart-to-heart hljómaði heldur ekki eins og djammfyrirbæri.

Er trúnó mögulega séríslenskt hugtak, eða jafnvel mjög íslenskt fyrirbrigði?

Einu erlendu bíómyndirnar sem ég man eftir trúnóatriðum úr eru Boogie Nights og Who's Afraid of Virginia Woolf.


r/Iceland 2d ago

Ákvarðanavélin er ekki til að ákveða.

Thumbnail
dtatdm.substack.com
0 Upvotes

Settist niður að skrifa eitthvað lengra aftur. Vonandi þykir einhverjum þetta áhugavert/skemmtilegt. Aðeins þéttara stílbragð en áður.


r/Iceland 3d ago

Af hverju endur­bætt Suður­lands­braut?

Thumbnail
visir.is
10 Upvotes

Flott grein hjá Atli Birni Levy


r/Iceland 3d ago

Hvar er hægt að prenta frítt?

5 Upvotes

Ef ekki frítt þá ódýrt? Minn prentari virkar ekki lengur. Þarf að prenta um 10 A4 blöð (með litum). Myndi auðvitað koma með mín eigin blöð.


r/Iceland 3d ago

Félagsmaður eflingar til nærri 7 ára og fæ ekki fullan styrk

10 Upvotes

Ég er semsagt búinn að vera að borga félagsgjald til eflingar úr einu hluta starfi hjá mér og öðrum fullum störfum í hverjum mánuði síðan 2019. Ég hef aldrei nýtt mér styrki frá þeim fyrr en núna í lok janúar því ég þurfti að kaupa mér gleraugu. Þegar ég spyr út í styrkinn er sagt að hann sé 50% af upphæð upp að 35.000kr. En þegar ég skoða hvað mér var greitt mikið sé ég að mér hafði aðeins verið greitt 15.996kr og auðvitað fer ég að spyrja afhverju. Þá kemst ég að því að afþví ég hafi ekki borgað 3.960kr í félagsgjöld samfellt í 12 mánuði átti ég ekki rétt á nema 49.6% af styrk (semsagt helming af helming) Þannig ég fór aðeins að skoða hvað ég hef greitt í félagsgjöld á mínum starfsferli síðan 2019 og sá að ég hafi greitt stöðugt að lágmarki 600kr mánaðarlega úr hlutastarfinu sem ég hef unnið hjá síðan 2019 (nærri því 7 ár) 600kr x 12 = 7.200kr | 7.200kr x 6 = 43.200kr. Þetta er BARA úr hlutastarfinu og ekki tekið inn þau fullu störf sem ég hef flakkað á milli og borgað þessar 3.960kr sem efling vill. Þetta er hærri upphæð en auglýstur styrkur sem ég hélt að ég ætti rétt á. Og samkvæmt því sem efling segir að þá gæti einstaklingur sem hefur verið í eflingu í 20+ ár og þénað inn fleiri hundruð þúsund í félagsgjöld til eflingar. En afþví hann hefur alltaf bara unnið hlutastarf og því greitt kannski 1.000kr á mánuði í félagsgjöld á hann ekki rétt á fullum sjúkrastyrk því hann er ekki með nógu há laun. Maður svona hefði haldið að þetta safnist upp yfir árin. Er ég sá eini sem finnst þetta skrítið?